Kosningasjónvarp Átaks, félag fólks með þroskahömlun verður í útsendingu á félsbókarsíðu Átaks næsta mánudag, þriðjudag og miðvikudag og er í útsendingu frá kl. 16:00 og þar til allir flokkar hafa komið í kaffi.
Útsending hefst kl 16:00 og lýkur þegar allir flokkar hafa komið í kaffi til okkar. Þar munu einn fulltrúi frá hverjum flokki sem býður fram í öllum kjördæmum á landinu koma og sitja fyrir svörum.
Útsendingin verður á fésbókarsíðu Átaks, félags fólks með þroskahömlun og hefst eins og áður segir alla þrjá daganna um kl. 16:00 og munu svo frambjóðendur koma og staldra við hjá spyrlum.
Röð flokkanna er með þeim hætti að á mánudeginum koma fulltrúi Flokk fólksins, Vinstri grænna, Framsóknar og Bjartrar Framtíðar.
Á þriðjudeginum hafa fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður Viðreisnar boðað komu sína. Á miðvikudeginum ætlar svo fulltrúi Pírata, Samfylkingar og Miðflokksins fest niður tíma með okkur.
Spyrlar verða Snæbjörn Áki, Katrín Guðrún, Ágústa og Haukur Guðmundsson