Taktu þátt í réttindabaráttu fólks með þroskahömlun

Vera með
Átak

Átak - félag fólks með þroskahömlun

Okkar Átak

  • Um Átak
  • Saga Átaks
  • Auðlesið
  • Lög Átaks

Efni

  • Fréttir
  • Viðburðir
  • Frikkinn
  • Stefnumál
  • Myndasafn
  • Útgefið efni

Samráð

  • Samráð
  • Samráðsaðilar
  • Leiðarvísir

Taka þátt

  • Fræðsla og ráðgjöf
  • Gerast félagi
  • Styrkja

Hafa samband

  • Hafnarstræti 6, 3. hæð, 101 Reykjavík
  • 764 9638
  • atak@okkaratak.is

© 2026 Átak - félag fólks með þroskahömlun

Kennitala: 431293-2699

Okkar Átak/Auðlesið

Auðlesið

Allir eiga rétt á upplýsingum á máli sem þeir skilja. Auðlesið mál er texti sem er skýr og einfaldur.

Aðgengi að upplýsingum er grundvallar-réttur.
Allir eiga rétt á að fá upplýsingar á máli sem þeir skilja.
Allir eiga rétt á að taka upplýstar ákvarðanir, lifa sjálf-stæðu lífi og nýta réttindi og skyldur sem öðrum bjóðast.
Einn leið til þess er að tryggja aðgengi að upplýsingum er að setja þær fram á auðlesnu máli.
Auð-lesið mál er texti sem er skrifaður á skýru og ein-földu máli. Það er texti sem er auð-velt að lesa. Þar eru orðin ekki of löng. Ef orðin eru löng eru þau skilin í sundur með band-striki.

Til hvers?

Auð-lesið efni nýtist fólki sem á erfitt með að lesa. Ef upplýsingar í sam-félaginu eru skrifaðar á auð-skildu máli geta allir nýtt sér upplýsingarnar.

Að þekkja réttindi sín og það sem lífið hefur upp á að bjóða getur ýtt undir sjálf-stæði manns.

  • Til að fá upplýsingar
  • Til að skilja betur fréttir, mikilvæg skjöl og upplýsingar
  • Til að vera hluti af samfélaginu
  • Til að vita réttindi okkar í samfélaginu
  • Til að geta ákveðið sjálf hvernig við viljum lifa lífi okkar

Hvernig skrifar maður auð-lesinn texta?

Nota stuttar setningar
Útskýra skal flókin eða óalgeng orð
Hafa myndir til skýringar með textanum
Textinn verður að vera svartur á hvítum bak-grunni
Hafa lýsandi fyrirsögn sem passar við innihald textans
Ekki nota númeratölur — nota frekar orðið eins og fimm, sextán eða tíu
Löngum orðum er skipt upp í minni einingar (Dæmi: Vinnumálastofnun → Vinnu-mála-stofnun)
Nota orð sem eru algeng í daglegu tali
Gott er að láta lesa yfir auðlesna textann

Auð-lesið efni alls staðar

Átak vill hvetja fyrir-tæki og frétta-miðla til að gera auð-lesinn texta og hafa á heima-síðum sínum og frétta-síðum. Til dæmis er hægt að hafa sérstakan dálk á horni vef-síðunnar sem flytur lesanda á aðra síðu þar sem hægt er að nálgast sama texta á auðlesnu máli.

Fjölmennt rekur Miðstöð um auðlesið mál og hægt er að hafa samband við þau ef það t.d. vantar hjálp við að þýða texta yfir á auðlesið mál eða vantar ráðgjöf um miðlun upplýsinga á auðlesnu máli.

RÚV auðskilið efni→Fjölmennt — Miðstöð um auðlesið mál→