Taktu þátt í réttindabaráttu fólks með þroskahömlun

Vera með
Átak

Átak - félag fólks með þroskahömlun

Okkar Átak

  • Um Átak
  • Saga Átaks
  • Auðlesið
  • Lög Átaks

Efni

  • Fréttir
  • Viðburðir
  • Frikkinn
  • Stefnumál
  • Myndasafn
  • Útgefið efni

Samráð

  • Samráð
  • Samráðsaðilar
  • Leiðarvísir

Taka þátt

  • Fræðsla og ráðgjöf
  • Gerast félagi
  • Styrkja

Hafa samband

  • Hafnarstræti 6, 3. hæð, 101 Reykjavík
  • 764 9638
  • atak@okkaratak.is

© 2026 Átak - félag fólks með þroskahömlun

Kennitala: 431293-2699

Okkar Átak/Frikkinn
Frikkinn

Frikkinn

Átak er með heiðurs-verðlaun sem heita Frikkinn. Fólk sem vinnur þessi verðlaun verða heiðurs-félagar Átaks. Frikkinn er fyrir fólk sem hefur barist fyrir sjálfstæði fólks með þroska-hömlun og stuðlað að samfélagi án aðgreiningar. Frikkinn heitir eftir Friðriki Sigurðssyni. Hann var fyrsti heiðursfélagi Átaks árið 2015.

Heiðursfélagar Átaks

2025
Þórir Gunnarsson og Jóhanna Brynja Gunnarsdóttir

Þórir Gunnarsson og Jóhanna Brynja Gunnarsdóttir

Þórir hefur helgað lífi sínu listsköpun. Hann er myndlistarmaður og málverkin hans hafa vakið mikla athygli. Hann hefur tekið þátt í samsýningum haldið fjölda einkasýninga, nú síðast í Hafnarborg. Hann tekur líka þátt í sýningu sem er núna á Alþingi. Þórir starfar sem listamaður og ráðgjafi hjá Listvinnzlunni og er með eigin vinnustofu í Mosfellsbæ.Hann hefur skarað fram úr og verið fyrirmynd fyrir aðra.

Þórir lætur sér þó ekki nægja að hafa skapað sér sinn eigin sess í listalífi Íslands heldur hefur hann einnig rutt veginn fyrir aðra. Hann hefur barist fyrir aðgengi fatlaðs fólks að listnámi. Á þessu ári hefur hann hann frætt nemendur og starfsfólks Listaháskóla Íslands um mikilvægi þess að fatlað fólk fái að sækja nám í skólanum.

Þórir er öðrum mikil fyrirmynd og hann snertir alla sem hann hittir með jákvæðni sinni og gleði.

Jóhanna Brynjavar útnefnd heiðursfélagi Átaks 2025 fyrir baráttu sína fyrir aðgengi að háskólamenntun fyrir fólk með þroskahömlun.

Jóhanna Brynja lætur hindranir kerfisins heldur ekki stoppa sig. Hún hefur barist fyrir aðgengi að menntun fyrir fólks með þroskahömlun.

Hún var í starfstengdu diplómanámi í Háskóla Íslands og barðist fyrir því að fleiri kæmust inn í námið. Jóhanna Brynja vill að skólinn taki inn nemendur á hverju ári en í vor var tekinn ákvörðun um að taka bara inn nemendur annað hvert ár þrátt fyrir mikla aðsókn. Hún vakti athygli á málinu í kröfugöngu, í fjölmiðlum og safnaði undirskriftum í samvinnu við Þroskahjálp.

Jóhanna Brynja afhenti menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra undirskriftalista með rúmlega 4000 undirskriftum í október. Hún sýndi að fatlað fólk getur talað fyrir sig sjálft og hvatti aðra til að gera slíkt hið sama.