Siða-reglur eru reglur
sem segja hvernig við eigum
að koma fram hvert við annað í vinnunni.
Starfs-lýsing eru reglur
sem útskýra hvað við eigum að gera í vinnunni.
Reglurnar hjá Átaki
passa upp á að:
- starfs-fólk styðji stjórn Átaks
- félags-menn Átaks ráði hvað Átak gerir
- starfs-fólk passi alltaf upp á
mann-réttindi félags-manna Átaks.
1. Markmið
Þessar siða-reglur eru settar til að skýra hlut-verk og ábyrgð þeirra sem starfa fyrir Átak, félag fólks með þroskahömlun.
Reglurnar miða að því að tryggja:
- að starfs-maður starfi ávallt í þágu Átaks og með fullri virðingu fyrir sjálf-stæði og ákvarðana-töku félags-manna;
- að sam-starf byggi á gagn-kvæmu trausti, gagnsæi og valda-jafnvægi;
- að hlutverk starfs-manns byggi á stuðningi og aðstoð – en ekki yfirráði.
Reglurnar eiga jafnframt að tryggja að:
- starfsmaður tali eða komi fram fyrir hönd félagsins eingöngu með umboði stjórnar;
- ákvarðanir og opinber tjáning félagsins byggist á lýðræðislegum vilja og ákvörðunum félagsmanna;
- ekki verði misbeiting á valdi eða óskýr mörk á milli stuðningshlutverks og ákvarðavalds;
- stjórn félagsins hafi skýra yfirsýn yfir verkefni og framgöngu starfsmanns og geti brugðist við ef vafi vaknar
Siðareglurnar eru liður í því að tryggja að starfsemi Átaks sé trú mannréttindum, sjálfsákvörðunarrétti og einkunnarorðinu „Ekkert um okkur án okkar“.
2. GRUNN-GILDI
Starfs-fólk Átaks heitir því að:
- virða sjálf-stæði félagsins og sjálf-ræði félags-manna.
- stuðla að vald-eflingu og inn-gildingu.
- tryggja að rödd félags-manna fái að heyrast á þeirra eigin for-sendum.
- styðja við lýðræðislega starfs-hætti og gegnsæi í öllum verkefnum.
3. HLUT-VERK OG ÁBYRGÐ
Starfs-fólk Átaks skal:
- tala og starfa á vegum Átaks, í umboði stjórnar.
- veita stuðning og aðstoð eftir þörfum félagsins.
- vinna að því að skapa rými þar sem félags-menn geta tekið þátt, skilið og haft áhrif.
- hafa samráð við stjórn áður en þeir miðla upplýsingum, sækir fundi eða tjáir sig opinberlega í nafni félagsins.
- tryggja að öll samskipti og framkvæmd haldist í samræmi við markmið félagsins og ákvörðunartöku-ferli þess.
4. UMBOÐ OG AÐKOMA AÐ ÁKVÖRÐUNUM
- Starfs-fólk hefur ekki sjálfstætt umboð til að taka ákvarðanir í nafni félagsins, nema stjórn hafi falið þeim það sérstaklega.
- Starfs-fólk getur komið með tillögur og sjónarmið til stjórnar, en þær skulu metnar og samþykktar af viðeigandi vettvangi félagsins.
- Þegar starfs-fólk tjáir sig út á við í nafni Átaks skal það byggjast á samþykktri stefnu, afstöðu eða samþykkt félagsins.
3. HLUT-VERK Í SAM-SKIPTUM ÚT Á VIÐ
- Öll opinber samskipti sem starfs-fólk sinnir (t.d. tölvu-póstar og sím-hringingar) skulu byggjast á samþykktum umboðum og með samþykki stjórnar eða í samráði við hana.
- Starfs-fólk skal alltaf gera grein fyrir því hvort hann tali í eigin nafni eða sem framkvæmdar-aðili fyrir stjórn eða fulltrúa félagsins.
4. STUÐNINGUR OG AÐGENGI
- Starfsmaður skal tryggja að öll samskipti við félagsmenn séu aðgengileg, virðingarfull og valdeflandi.
- Hann skal ekki leiða stefnumótun eða ræða umbætur nema það sé sérstaklega falið honum að gera það sem liður í stuðningi við félagsmenn.
- Þegar starfsmaður leiðir fundi, rita fundargerðir eða undirbýr gögn skal hann tryggja að þau endurspegli vilja félagsins, ekki hans eigin mat.
5. JAFNRÆÐI OG VIRÐING
Starfsmaður skal sýna félagsmönnum virðingu og ekki nýta aðstöðumun eða fagþekkingu til að þrýsta á um ákvarðanir.
Hann skal forðast að setja stjórn í þá stöðu að þurfa að „velja á milli“ hans og félagsmanna.
6. ÁBYRGÐ OG EFTIRLIT
- Starfsmaður skal skila mánaðarlegri stöðuskýrslu til stjórnar um helstu verkefni og samskipti.
- Ákvörðun um áframhaldandi starfshlutfall eða breytingar skal taka með reglulegu mati á trausti, samstarfi og samþykki stjórnar.
- Komi upp vafi um mörk, umboð eða framferði skal það tekið upp á fundi með stjórnarformanni eða stjórn allri.