Taktu þátt í réttindabaráttu fólks með þroskahömlun

Vera með
Átak

Átak - félag fólks með þroskahömlun

Okkar Átak

  • Um Átak
  • Saga Átaks
  • Auðlesið
  • Lög Átaks

Efni

  • Fréttir
  • Viðburðir
  • Frikkinn
  • Stefnumál
  • Myndasafn
  • Útgefið efni

Samráð

  • Samráð
  • Samráðsaðilar
  • Leiðarvísir

Taka þátt

  • Fræðsla og ráðgjöf
  • Gerast félagi
  • Styrkja

Hafa samband

  • Hafnarstræti 6, 3. hæð, 101 Reykjavík
  • 764 9638
  • atak@okkaratak.is

© 2026 Átak - félag fólks með þroskahömlun

Kennitala: 431293-2699

Okkar Átak/Saga Átaks

Saga Átaks

Fólk með þroskahömlun stofnaði Átak. Átak var stofnað 20. september 1993. Fólkið í Átaki berst fyrir sínum eigin réttindum.

„Við stofnuðum þetta félag sjálf til að ráða okkar eigin lífi í framtíðinni. Það eru sumir sem fá ekki að ráða sínu eigin lífi. Oft er það þannig hjá þeim sem eiga eldri systkini að þau vilja ráða yfir okkur og okkar lífi og það er það sem við viljum ekki. Við viljum fá að sjá það sjálf hvað við getum í framtíðinni.“

— Ína Valsdóttir, fyrsti formaður Átaks.

Ásta B. Þorsteinsdóttir afhendir Ínu Valsdóttur fundarhamar á stofnfundi

Tímalína

1985

Umræðuhópar urðu til

Fyrstu umræðu-hópar fólks með þroskahömlun urðu til innan Þroska-hjálpar.

1986

Fyrsta málþing fólks með þroskahömlun

Fólk með þroskahömlun ræddi um frístundir og rétt fólks til að hafa áhrif á eigið líf. 14 fulltrúar voru á þinginu, þau voru með 5 aðstoðarmenn.

1993

Átak stofnað

Fólk með þroskahömlun stofnaði sitt eigið félag. Fólkið ákvað að stofna félag á vorþingi Þroskahjálpar. Átak var stofnað 20. September 1993. Árið 1993 hér félagið: Átak félag þroskaheftra.

1993

Fyrsta stjórn Átaks

Fyrsti formaður Átaks var Ína Valsdóttir. Stjórnarmenn voru: Gunnar Gunnbjörnsson, María Hreiðarsdóttir, Birgir Björnsson og Ólafur Ólafsson. Fyrsta stjórn Átaks vildi að fólk með þroskahömlun fengi að ráða sínu eigin lífi.

1998

Átak tók við umræðuhópum

Átak byrjaði að sjá um umræðuhópa fólks með þroskahömlun. Átak gerði starfs-samning við Þroskahjálp. Þroskahjálp lét Átak fá pláss á skrifstofunni sinni.

2015
Fyrsti Frikkinn

Fyrsti Frikkinn

Átak veitti heiðurs-verðlaun í fyrsta skipti. Friðrik Sigurðsson var fyrsti félaginn til að fá verðlaunin. Verðlaunin voru kennd við hann: Frikkinn.

2016

Samningur SÞ fullgiltur

Ísland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Átak hefur verið virkur þátttakandi í eftirliti.

2016

Mánaðarlegir miðvikudagar

Á mánaðarlegum miðvikudögum hittist félagsfólk og: lærir eitthvað nýtt og spjallar saman. Mánaðarlegir miðvikudagar urðu til árið 2016.

2016

Stoltgangan

Átak bjó Stoltgönguna til með: – List án landamæra – Þroskahjálp – Pipar auglýsingastofa

2016

Formaður ráðinn í starf

Aileen Soffía Svensdóttir fékk vinnu hjá Átaki. Hún var fyrsti formaður Átaks til að vinna hjá Átaki.

2016

Viðtöl við frambjóðendur

Átak hélt fund með frambjóðendum til forseta Íslands. Þátta-stjórnendur úr „Með okkar augum“ stýrðu fundinum.

2016

Átak heldur leiðar-þing

Leiðar-þing er stór fundur þar sem félagsmenn Átaks ræða málefni sem þeim finnst skipta máli. Árið 2016 var rætt um aðgengi að samfélaginu.

2023

30 ára afmæli

Átak fagnar 30 ára afmæli

2023

Afmælishátíð

30 ára afmæli Átaks var fagnað með pompi og prakt.

2024

Hjálpum þeim

Átak gaf út tónlistarmyndband sem heitir Hjálpum þeim.

2025

Fatlað fólk í fjölmiðlum

Átak byrjaði verkefni til að minna fjölmiðla á að tala alltaf við fatlað fólk þegar þau fjalla um fatlað fólk.

2025

Samstarf við eigin talsmenn í Evrópu

Átak varð meðlimur í Evrópu-vettvangi eigin talsmanna. Vett-vangurinn heitir EPSA eða "The European Platform of Self-Advocates".

2025

Ný skrifstofa Átaks

Átak opnaði sína eigin skrifstofu. Skrifstofan er á Hafnarstræti 6.