Umfjöllun um Átak og baráttumál okkar í fjölmiðlum.
Samstöðin · 20. október 2026
Björgvin Kristbergsson ræðir við Gunnar Smára um stöðu fólks með þroskahömlun fyrr og nú. Hann talar líka um sanngirnis-bætur sem hann telur sig eiga rétt á vegna illrar meðferðar. Björgvin er búinn að vera í Átaki síðan félagið var stofnað, árið 1993
Morgunblaðið · 19. október 2026
Björgvin Kristbergsson, meðstjórnandi í Átaki, skrifaði grein í Morgunblaðið. Þar segir hann frá æsku sinni og brotunum sem hann varð fyrir. Hann vill fá réttlæti og vill fá ráða eigin lífi það sem eftir er.
Rás 1 · 14. október 2026
Viðtal í Speglinum á Rás 1 við þrjá fulltrúa Átaks þar sem þau ítreka mikilvægi þess að fatlað fólk tali fyrir sig sjálft í fjölmiðlum og annarsstaðar í október 2026.
Vísir · 9. október 2026
Áslaug Þorsteinsdóttir, félagi í Átaki, skrifar um orðið „þroskaheftur“, af hverju það særir og hvaða orð er betra að nota.
Vísir · 8. október 2026
Jónína Rósa Hjartardóttir, formaður Átaks, hvetur RÚV til að tala við fólk með þroskahömlun sjálft, ekki aðeins sérfræðinga og foreldra.
Vísir · 26. ágúst 2026
Frétt á Vísir upp úr viðtali sem sjónvarpsfréttir Sýnar tóku við fatlað fólk um málþing Átaks um þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst 2026.
Rás 1 · 25. ágúst 2026
Viðtal á Morgunvaktinni á Rás 1 um námskeið Átaks Hvað ætla ég að kjósa? í ágúst 2026.
Vísir · 19. ágúst 2026
Grein Sunnu Daggar Ágúsdóttir, Atla Más Haraldssonar og Sveinbjörns Eggertssonar um mikilvægi þess að fatlað fólk nýti kosningarétt sinn sem birt var á Vísi í ágúst 2026.
Vísir · 19. júní 2026
Grein Jónínu Rósu og Jönu Birtu Björnsdóttur um stöðu fatlaðra kvenna og hinsegin fólks í tilefni Kvenréttindadagsins í júní 2026 sem birt var á Vísi.
Vísir · 25. mars 2026
Atli Már Haraldsson, fréttamaður Sérfrétta og stjórnarmaður Átaks, skrifar um mikilvægi liðveislu – og hvað gerist þegar hún hverfur.
Vísir · 28. febrúar 2026
Viðtal við Hauk Guðmundsson, formann Átaks: „Við erum baráttufélag, hagsmunafélag fyrir fatlað fólk,“ segir Haukur og bætir við að það sem aðskilji Átak frá öðrum hagsmunafélögum sé að í stjórninni sitji eingöngu fólk með þroskahömlun. „Við montum okkur svolítið af því. Ekkert um okkur án okkar.“
Morgunblaðið · 18. desember 2025
Hvað ef…: Grein um tækifæri fólks með þroskahömlun eftir Atla Már Haraldsson sem birt var í Morgunblaðinu í desember 2025
Rás 1 · 8. desember 2025
Björn Malmquist, fréttamaður RÚV, tók viðtal við Jónínu Rósu, formann Átaks, um þátttöku Átaks í ráðstefnunni Hear Our Voices í Brussel í síðustu viku. Viðtalið var spilað í Morgunvaktinni 8. desember 2025.
Rás 1 · 23. ágúst 2025
Helgarútgáfan leit við á ljóðaviðburðinn okkar á Menningarnótt og ræddi Atla Má Haraldsson, Elínu Sigríði Maríu Ólafsdóttur og Hörpu Rut Elísdóttur ljóðahöfunda. Atli og Harpa lásu upp ljóð fyrir hlustendur beinni. 🎙Viðtalið hefst 1:51:00🎙
Vísir · 25. apríl 2025
Við erum ekki tilraun. Við erum hluti af samfélaginu.“ 💬 segir Haukur Guðmundsson, formaður Átaks í aðsendri grein á Vísi. ‼️ Háskóli Íslands hefur ákveðið að hætta að taka inn nemendur í starfstengt diplómanám á hverju ári. Diplómanámið er eina háskólanámið sem er sérstaklega hugsað fyrir fólk með þroskahömlun. 📚 Á Íslandi er menntun ekki fyrir öll. ✊ Við í Átaki krefjumst virðingar, tækifæra og framtíðar!
Vísir · 22. apríl 2025
„Ég er miklu sjálfstæðari en ég var.“ 💬 segir Sveinbjörn, varaformaður Átaks. Hann þurfti að bíða eftir NPA í 5 ár. 🌍 Núna getur hann ferðast sjálfur, 🧭 stýrt sínu daglega lífi 📚 og stefnt á háskólanám í tómstunda- og félagsmálafræði. 📣 Sveinbjörn kallar eftir því að stjórnvöld minnki biðlistana. 🗣️ NPA er ekki forréttindi – það er mannréttindi.
Vísir · 22. nóvember 2024
Formaður Átaks, Haukur Guðmundsson, deilir skoðun Átaks á Vísi. Stjórnvöld mega ekki taka ákvarðanir um öryggi og réttindi fatlaðs fólks sem gera líf fatlaðs fólks flóknara og erfiðara en það er í dag.