Taktu þátt í réttindabaráttu fólks með þroskahömlun

Vera með
Átak

Átak - félag fólks með þroskahömlun

Okkar Átak

  • Um Átak
  • Saga Átaks
  • Auðlesið
  • Lög Átaks

Efni

  • Fréttir
  • Viðburðir
  • Frikkinn
  • Stefnumál
  • Myndasafn
  • Útgefið efni

Samráð

  • Samráð
  • Samráðsaðilar
  • Leiðarvísir

Taka þátt

  • Fræðsla og ráðgjöf
  • Gerast félagi
  • Styrkja

Hafa samband

  • Hafnarstræti 6, 3. hæð, 101 Reykjavík
  • 764 9638
  • atak@okkaratak.is

© 2026 Átak - félag fólks með þroskahömlun

Kennitala: 431293-2699

Okkar Átak/Lög Átaks

Lög Átaks

Lög Átaks erum reglur sem fólkið í Átaki þarf að fara eftir. Þessum lögum var breytt á aðal-fundi 2025 og öðlast gildi frá 20. september 2025.

Félagið heitir Átak, félag fólks með þroskahömlun.

Félagið hefur aðsetur í Reykjavík.

Markmið félagsins eru:

  • að vinna að auknu sjálf-ræði fatlaðs fólks,
  • að vinna að jafn-ræði í samfélaginu,
  • að vinna að réttindum,
  • að vinna samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks,
  • að standa vörð um réttindi fólks með þroska-hömlun og/eða aðrar skyldar fatlanir,
  • að tryggja sýni-leika fatlaðs fólks,
  • að tryggja samfélagslega þátttöku.

Öll þau sem eru 16 ára og eldri geta gengið í félagið.

Öll þau sem vilja vinna að betra lífi fyrir fatlað fólk mega vera félagar.

Aðal-fund félagsins skal halda fyrir 20. september á hverju ári.

Að minnsta kosti tveimur (2) vikum fyrir aðal-fund skal félagið senda fundar-gögn til félagsmanna.

Fundar-gögn eru skjöl sem sýna:

  • Dag-skrá aðal-fundar.
  • Laga-breytingar: Útskýring á því hvernig breytingar á lögum yrðu.

Stjórn Átaks á að tryggja að öll skjöl séu aðgengileg öllum félags-mönnum.

  1. Kosning fundar-stjóra og fundar-ritara
  2. Skýrsla stjórnar um ný-liðið starf-sár og starfið framundan
  3. Skýrsla um fjár-hag samtakanna og samþykkt reikninga
  4. Kosning formanns félagsins
  5. Kosning vara-formanns félagsins
  6. Kosning annarra stjórnar-manna
  7. Kosning fulltrúa nefnda:

- Laga- og trúnaðar-nefnd - Uppstillingar-nefnd

  1. Kosning skoðunarmanna
  2. Ákvörðun um árgjald
  3. Laga-breytingar og aðrar tillögur
  4. Önnur mál

Á aðalfundi er kosin stjórn. Félags-menn sem ekki komast á aðalfund geta kosið í gegnum síma á meðan fundi stendur. Uppstillinganefnd metur hverju sinni hvernig útfæra skal framkvæmd síma-kosningar.

Þeir sem kjósa þurfa að vera skráðir í félagið.

Kjósa skal stjórn samkvæmt 6., 7. og 8. grein þessara laga, uppstillingar-nefnd samkvæmt 10. grein og laga- og trúnaðarnefnd samkvæmt 11. grein.

Í aðalstjórn Átaks eru 5 einstaklingar. Til viðbótar eru 3 vara-menn. Samtals eru 8 einstaklingar í stjórn.

Þeir eru:

  • formaður,
  • vara-formaður,
  • gjaldkeri,
  • ritari,
  • meðstjórnandi.

Kosningin skiptist í tvennt:

  1. Kosning formanns og vara-formanns.
  2. Aðrir stjórnar-menn.

Þeir sem hljóta flest atkvæði verða hluti af stjórn félagsins. Á fyrsta stjórnar-fundi skiptir stjórn með sér verkum.

Ef formaður þarf að hætta í stjórn, tekur vara-formaður við skyldum formanns. Það gildir fram að næsta aðal-fundi. Ritari tekur við skyldum vara-formanns.

Þrír einstaklingar eru kosnir vara-menn. Röð vara-manna fer eftir hversu mörg atkvæði þeir fá.

  1. vara-maður er sá sem fær flest atkvæði,
  2. vara-maður er sá sem fær næstflest,
  3. vara-maður sá sem fær þriðju flest atkvæði.

Vara-menn í stjórn hafa ekki atkvæðis-rétt á stjórnar-fundi. Vara-menn geta sett fram tillögur. Vara-menn mega tjá sig á fundum.

Eitt ár skal kjósa milli formanns (1), tveggja stjórnar-manna (2) og eins vara-manns (1). Hitt árið skal kjósa vara-formann (1), einn stjórnar-mann (1) og tvo vara-menn (2).

Hver stjórnar-maður situr í stjórn í 2 ár. Hver stjórnar-maður má sitja í 4 kjört-ímabil í einu. 4 kjör-tímabil eru 8 ár. Þessi regla gildir um alla stjórnar-menn.

Fólk með þroska-hömlun og skyldar fatlanir má vera í stjórn.

Fólk sem er 18 ára og eldra má vera í stjórn.

Félags-gjald er ákveðið á aðal-fundi. Félags-gjald segir til um hvað kostar að vera félagi í Átaki.

Félags-gjöld skal borga fyrir 1. apríl á hverju ári.

Félags-menn sem eru yngri en 18 ára greiða ekki félags-gjald til félagsins.

Þrír einstaklingar sitja í uppstillingar-nefnd. Þeir eru kosnir á aðalfundi.

Uppstillingar-nefnd hefur það hlutverk:

  • að taka á móti framboðum í stjórn félagsins,
  • að taka á móti framboðum í nefndir félagsins.

Framkvæmda-stjóri félagsins er starfsmaður nefndarinnar. Formaður nefndarinnar tilkynnir fyrir-komulag kosninga á aðal-fundi.

Á aðalfundi skal kjósa þriggja manna laga- og trúnaðar-nefnd. Nefndin er sjálfstæð í störfum.

Hlutverk nefndarinnar eru:

  • að fjalla um laga-breytingar,
  • að hafa eftirlit með störfum félagsins,
  • að hafa eftirlit með framkvæmd ákvarðana.

Nefndin velur sér formann á fyrsta fundi. Á fyrsta fundi setur nefndin sér starfsreglur.

Framkvæmd-astjóri félagsins er starfsmaður nefndarinnar. Nefndin nýtur liðsinnis óháðs einstaklings sem kemur úr röðum fulltrúa heildarsamtaka fatlaðs fólks sem félagið á aðild að. Óháði einstaklingurinn skal valinn í samráði við formann stjórnar félagsins.

Stjórn hefur heimild til að ráða framkvæmda-stjóra félagsins. Starf framkvæmda-stjóra skal auglýst opinberlega. Heimilt er að fá utan-aðkomandi aðila til að halda utan um ráðningar-ferli.

Framkvæmda-stjóri annast daglegan rekstur samtakanna. Daglegur rekstur skal vera í samræmi við stefnu og fyrirmæli stjórnar. Daglegur rekstur tekur ekki til ráðstafana sem eru óvenjulegar eða meiri háttar.

Framkvæmda-stjóri sér um starfsmanna-mál samtakanna. Hann getur skuldbundið samtökin í málum sem eru innan hans verksviðs. Nánar um starfs-skyldur skal kveða á um í ráðningar-samningi.

Stjórn er heimilt að setja nánari reglur um störf framkvæmda-stjóra.

Framkvæmda-stjóri skal sjá um að bókhald samtakanna sé fært í samræmi við lög og venjur. Framkvæmda-stjóri skal sjá um að meðferð eigna samtakanna sé með tryggilegum hætti.

Frikkinn er heiðurs-viðurkenning félagsins. Frikkinn skal veita á hverju ári í kringum dagsetninguna 3. desember. 3. desember er alþjóða-dagur fatlaðs fólks.

Sá sem hlýtur heiðurs-viðurkenningu félagsins verður skráður heiðurs-félagi Átaks. Heiðurs-félagar Átaks greiða ekki félags-gjöld.

Stjórn er heimilt að stofna undir-félög og/eða veita félögum sem stofnuð eru með sama markmið og Átak, aðild að félaginu. Stjórn setur sér verklags-reglur um slíkt fyrir-komulag.

Reiknings-ár félagsins er almanaks-árið, 1. janúar til 31. desember. Reikningar skulu skoðaðir af tveimur skoðunar-mönnum. Skoðunar-menn eru kosnir á aðalfundi.

Ef félagið hættir þá þarf að kjósa um það á aðal-fundi. Til að slíta félaginu þurfa tveir þriðju fundar-manna (2/3) að samþykkja slitin.

Ef ákveðið verður að slíta félaginu ber aðal-fundi að sjá til þess að eigur félagsins verði nýttar til þess að standa vörð um réttindi fólks með þroska-hömlun og/eða aðrar skyldar fatlanir.

Þessum lögum má aðeins breyta á aðal-fundi. Þá þarf að kjósa um það. Tveir þriðju fundar-manna aðal-fundar (2/3) þurfa að samþykkja breytinguna.