Taktu þátt í réttindabaráttu fólks með þroskahömlun

Vera með
Átak

Átak - félag fólks með þroskahömlun

Okkar Átak

  • Um Átak
  • Saga Átaks
  • Auðlesið
  • Lög Átaks

Efni

  • Fréttir
  • Viðburðir
  • Frikkinn
  • Stefnumál
  • Myndasafn
  • Útgefið efni

Samráð

  • Samráð
  • Samráðsaðilar
  • Leiðarvísir

Taka þátt

  • Fræðsla og ráðgjöf
  • Gerast félagi
  • Styrkja

Hafa samband

  • Hafnarstræti 6, 3. hæð, 101 Reykjavík
  • 764 9638
  • atak@okkaratak.is

© 2026 Átak - félag fólks með þroskahömlun

Kennitala: 431293-2699

Til baka í fréttir

Ágústa Erla, formaður Átaks er látin

27. ágúst 2020

Ágústa Erla Þorvaldsdóttir, formaður Átaks, lést á Landspítalanum.

Ágústa Erla Þorvaldsdóttir, formaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun og varaformaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, lést á Landspítalanum 23. ágúst síðastliðinn.

Ágústa Erla var stofnfélagi í Átaki og sat hún í fjöldamörg ár í stjórn og gengdi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Hún hefur verið formaður Átaks frá árinu 2018 en Ágústa sat einnig í stjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar og var kosin varaformaður samtakanna árið 2019 og var að auki í stjórn Listar án landamæra fyrir hönd Átaks.

Réttindabarátta var Ágústu mjög hugleikin og við minnumst sterkrar og jákvæðrar konu sem var ötul í hagsmunabaráttu fólks með þroskahömlun meðal annars í störfum sínum fyrir Átak og Landssamtökin Þroskahjálp. Framlag hennar til félagsins og til baráttunnar fyrir sjálfsákvörðunarrétti fólks með þroskahömlun er ómetanlegt. Hún var mjög metnaðarfull í starfinu og hvatti sérstaklega ungt fólk til að taka þátt. Hún var drífandi og fékk fleiri með sér í baráttuna enda jákvæðni hennar smitandi.

Að leiðarlokum sendum við ástvinum Ágústu innilegar samúðarkveðjur.

Fleiri fréttir

21. apríl 2026

Stundum gleymist fatlað fólk

Grein um mikilvægi liðveislu

Lesa frétt