Finnst okkur mikilvægt að fatlað fólk kjósi?
Við vitum best
hvað okkur er
fyrir bestu.
Enginn annar getur
komið í staðinn fyrir okkur
og okkar þekkingu.
Með því að segja
hvað okkur finnst
þá getum við haft áhrif
á íslensk stjórnvöld
og samfélagið.
Við höfum rétt á að
hafa okkar skoðanir
rétt eins og allir aðrir.
Það má enginn segja
okkur hvað við eigum
að kjósa nema við.
Við eigum rétt á því
að segja hvað okkur
finnst.
Við erum verðmætur hluti
af samfélaginu.
Raddir okkar
eiga skilið að heyrast.
Fötlun er ekki vandi
heldur kostur
og heilbrigður fjölbreyti-leiki
mannkyns.
Endilega förum öll á kjörstað,
Nýtum atkvæðis-réttinn okkar
og verum sýnileg.
Ekkert um okkur, án okkar!
