Fulltrúar Átaks tóku viðtal við Guðna Th. og Guðmund Franklín fyrir forsetakosningar.
25. júní 2020
Fulltrúar Átaks tóku viðtal við Guðna Th. og Guðmund Franklín fyrir forsetakosningar.
Sunnefa Gerhardsdóttir og Jónína Rósa Hjartardóttir úr stjórn Átaks tóku á dögunum viðtal við Guðna Th. Jóhannesson og Guðmund Franklín Jónsson. Þeir eru báðir að bjóða sig fram til forseta í kosningu sem fer fram næsta laugardag 27. júní 2020.
Viðtölin voru sett saman í eitt myndband tileinkað kosningunum en í sama myndbandi hvetur Haukur Guðmundsson, varaformaður Átaks, alla til að mæta á kjörstað og nýta rétt sinn til að kjósa í kosningunum.
Hægt er að sjá myndbandið með því að ýta Hér.
Einnig er hægt að sjá myndbandið á facebook síðu Átaks.
