Við fögnum áhuga forseta á málefnum fatlaðra og frumkvæði hans að hlusta á minnihlutahópa.
Heimsókn Guðna Th. Jóhannessonar forseta á Sólheima hefur verið í umræðunni að undanförnu.
Við fögnum áhuga forseta okkar allra á málefnum fatlaðs fólks og frumkvæði hans að tala máli minnihlutahópa og hlusta á þá. Það sýndi hann líka ásamt flestum öðrum frambjóðendum með því að mæta á fundinn okkar „frambjóðendur svara“ í júní s.l.
Oft er fatlað fólk hópur sem hafður er til hliðar. Því ætlum við hjá Átaki, félagi fólks með þroskahömlun að fagna umræðunni og taka þátt í henni af fullum krafti.
Heimsókn forsetans á Sólheima gefur tilefni til að skoða nokkra hluti sem þeim tengjast og spyrja spurninga.
- Eru Sólheimar lítið samfélag þar sem 43 fatlaðir búa við sambærileg réttindi og aðrir íbúar staðarins eða eru þeir altæk stofnun?
- Hafa allir íbúar í því samfélagi valið að búa þar og geta þeir flutt þaðan ef þeir vilja?
- Er fatlaður einstaklingur í framkvæmdastjórn eða í fulltrúaráði Sólheima?
- Búa allir íbúar í samfélaginu við sambærileg launa- og starfskjör?
- Hvert rennur andvirði þeirra mikils metinna listmuna sem þar eru framleiddir?
- Búa allir íbúar samfélagsins við sambærilegar reglur og almenn réttindi?
