Til baka í fréttir

Frikkinn 2025

26. nóvember 2025

Verðlaunahátíð Átaks. Þér er boðið.

Frikkinn 2025

Þér er boðið að koma á hátíð þar sem við tilkynnum hver vinnur Frikkann 2025.

Frikkinn eru heiðursverðlaun Átaks. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, tilkynnir hver fær verðlaunin.

Upplýsingar um Frikkann:

Frikkinn 2025 6. desember kl. 15–17 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús Tryggvagata 17

Þú getur spurt fólkið í Átaki um viðburðinn með því að senda okkur póst á: atak@okkaratak.is

Þú þarft ekki að borga neitt, þetta er ókeypis!

AÐGENGI:

Inngangur: Aðgengilegur inngangur frá Tryggvagötu 17. Rennihurð sem opnast sjálfkrafa. Engir þröskuldar.

Salur: Frikkinn er í sal á jarðhæð. Salurinn er á móti Portinu. Enginn þröskuldur er í fjölnotasalinn.

Bílastæði: Aðgengileg stæði við Hafnarhús (Geirsgötu). Einnig stæði í Hafnartorgi og Vesturgötu 7.

Strætó sem ganga í á listasafnið: Leið 1, 3, 6, 11, 12, 13, 14.

Fleiri fréttir

21. janúar 2026

Félagsfundur 4.febrúar

Átak býður til félagsfundar 4. febrúar á Hafnarstræti 4.

Lesa frétt