Hagsmunasamtök fatlaðra hittu utanríkisráðherra og minntu á fatlað fólk í Úkraínu.
AUÐLESIÐ
- Nokkur samtök fatlaðs fólks hittu Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur utanríkis-ráðherra og töluðu um fatlað fólk í Úkraínu
- Átak var meðal þeirra
- Samtökin hvöttu ráðherra til að gæta að öryggi fatlaðs fólks í Úkraínu og taka á móti fötluðu flóttafólk frá Úkraínu
- Í stríði hefur fatlað fólk ekki sömu möguleika til að flýja. Þau vantar oft stuðning, lífsnauðsynleg hjálpartæki eða lyf
- Samtökin sögðu ráðherra líka frá neyðarsöfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Reiknings-upplýsingar má finna hér fyrir neðan
Fulltrúar fimm samtaka fatlaðs fólks, Átak, félag fólks með þroskahömlun, Landssamtökin Þroskahjálp, Tabú - feminísk fötlunarhreyfing, Öryrkjabandalagið og NPA miðstöðin hittu Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur utanríkisráðherra og minntu á fatlað fólk í Úkraínu.
Samtökin afhentu ráðherra áskorun til íslenskra stjórnvalda um að gera það sem í þeirra valdi stendur til að koma á friði í Úkraínu, gæta að öryggi fatlaðs fólks á átakasvæðunum og taka á móti fötluðu flóttafólki á Íslandi. Samtökin buðu fram krafta sín við að leggja til sérfræðiþekkingu og stuðning við neyðaraðstoð og/eða móttöku fatlaðs flóttafólks frá Úkraínu. Þessi sömu samtök standa þessa dagana fyrir söfnun svo betur megi aðstoða fatlað fólk á flótta.
Söfnunarreikningurinn er 526-26-5281, kt. 521176-0409.
Áskorun samtakanna í heild sinni:
Áskorun til stjórnvalda vegna fatlaðs fólks í Úkraínu
Átak - félag fólks með þroskahömlun, Tabú - feminísk fötlunarhreyfing, Landssamtökin Þroskahjálp, Öryrkjabandalag Íslands og NPA miðstöðin skora á stjórnvöld að grípa tafarlaust til aðgerða til að tryggja öryggi fatlaðra borgara í því stríði sem nú geysar í Úkraínu og koma á friði.
