Taktu þátt í réttindabaráttu fólks með þroskahömlun

Vera með
Átak

Átak - félag fólks með þroskahömlun

Okkar Átak

  • Um Átak
  • Saga Átaks
  • Auðlesið
  • Lög Átaks

Efni

  • Fréttir
  • Viðburðir
  • Frikkinn
  • Stefnumál
  • Myndasafn
  • Útgefið efni

Samráð

  • Samráð
  • Samráðsaðilar
  • Leiðarvísir

Taka þátt

  • Fræðsla og ráðgjöf
  • Gerast félagi
  • Styrkja

Hafa samband

  • Hafnarstræti 6, 3. hæð, 101 Reykjavík
  • 764 9638
  • atak@okkaratak.is

© 2026 Átak - félag fólks með þroskahömlun

Kennitala: 431293-2699

Til baka í fréttir

Jólagleði Átaks og afhending Frikkans

13. desember 2023

Jólagleði var haldin og Frikkinn veittur Eiríki Smith réttindagæslumanni.

Jólagleði Átaks og afhending Frikkans

Sunnudaginn 10. desember bauð Átak félagsfólki sínu í jólagleði sem haldin var á Háaleitisbraut 13.

Heiðursverðlaun Átaks voru veitt á jólagleðinni, þau heita Frikkinn og eru nefnd eftir Friðriki Sigurðssyni sem var fyrsti heiðurfélagi Átaks árið 2015. Viðurkenningin er veitt þeim einstaklingi eða hópi sem hefur lagt sig fram við að styðja að sjálfstæði fólks með þroskahömlun og stuðlað að samfélagi án aðgreiningar á einhvern hátt.

Í ár var það Eiríkur Smith réttindagæslumaður sem fékk Frikkann en Eiríkur hefur verið óþreytandi við að vinna að nýrri nálgun í réttindum fatlaðs fólks. Hann á þátt í miklum fjölda að málum sem hafa komið á borð réttindagæslunnar sem hafa brotið niður múra og skapað nýjan farveg í málsmeðferð stjórnvalda. Nýjasta dæmið um það er nýr úrskurður kærunefndar jafnréttismála þar sem hann á gífurlegan þátt í því að rökstyðja af hverju brotið var á fötluðum einstaklingi með því að synja honum um rafræn skilríki. Eljan og einbeittur vilji Eiríks til að sækja réttindi fatlaðs fólks er augljós og aðdáunarverður.  

Forsetafrúin Eliza Reid veitti Eiríki verðlaunin auk þess að spjalla við félagsmenn, að lokum kom séra Pétur Þorsteinsson og flutti jólahugvekju sína við góðan róm félagsmanna.

Fleiri fréttir

21. apríl 2026

Stundum gleymist fatlað fólk

Grein um mikilvægi liðveislu

Lesa frétt