Taktu þátt í réttindabaráttu fólks með þroskahömlun

Vera með
Átak

Átak - félag fólks með þroskahömlun

Okkar Átak

  • Um Átak
  • Saga Átaks
  • Auðlesið
  • Lög Átaks

Efni

  • Fréttir
  • Viðburðir
  • Frikkinn
  • Stefnumál
  • Myndasafn
  • Útgefið efni

Samráð

  • Samráð
  • Samráðsaðilar
  • Leiðarvísir

Taka þátt

  • Fræðsla og ráðgjöf
  • Gerast félagi
  • Styrkja

Hafa samband

  • Hafnarstræti 6, 3. hæð, 101 Reykjavík
  • 764 9638
  • atak@okkaratak.is

© 2026 Átak - félag fólks með þroskahömlun

Kennitala: 431293-2699

Til baka í fréttir

Fundað með Forseta Íslands

28. nóvember 2016

Fundur var haldinn með Forseta Íslands um mikilvægi þess að hafa fatlað fólk með í ráðum.

Haldinn var mikilvægur fundur með Forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni á skrifstofu hans á Staðastað. Á fundinum var talað um mikilvægi þess að fólk með þroskahömlun sé haft með í ráðum um sín málefni.

Fundinn sóttu auk forsetans formaður og varaformaður Átaks, félags fólks með þroskahömlun, Sendiherrar Samnings Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og verkefnastjórar verkefnisins Jafnrétti fyrir allra.

Forsetinn var fræddur um réttindabaráttu fólks með þroskahömlun og mikilvægi þess að fólkið sjálft sé haft með í ráðum um mál sem það varðar. Farið var yfir orðin „Ekkert um okkur án okkar“ og mikilvægi þess að fólk með þroskahömlun sé sýnilegt og taki þátt í samfélaginu til jafns á við aðra.

Forsetinn þakkaði fyrir heimsóknina og sagðist vera til staðar fyrir alla eins og honum beri og hann ætlaði að skoða boð Sendiherranna um að fá fyrirlestur um samninginn fyrir forsetaembættið.

Einnig talaði forsetinn um að hann gæti ekki breytt heiminum einn, en að með sameiginlegu átaki væri hægt að ná langt. Hann talaði líka um að Átak hefði verið sýnilegt í að herja á stjórnmálamenn.

Mikil ánægja var með fundinn og hér er hægt að sjá myndir frá honum.

Myndir frá fundinum

Fleiri fréttir

21. apríl 2026

Stundum gleymist fatlað fólk

Grein um mikilvægi liðveislu

Lesa frétt