Til baka í fréttir

NEYÐARSÖFNUN FYRIR FATLAÐ FÓLK Í ÚKRAÍNU!

7. mars 2022

Hagsmunasamtök hafa sett af stað söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu.

NEYÐARSÖFNUN FYRIR FATLAÐ FÓLK Í ÚKRAÍNU!

Átak - félag fólks með þroskahömlun, Þroskahjálp, TABÚ og Öryrkjabandalag Íslands, hafa í samvinnu hvert við annað sett af stað söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu.   Fatlað fólk er sérstaklega berskjaldað í stríðsátökum og staða þess í Úkraínu grafalvarleg. Fatlað fólk getur ekki flúið vegna aðstæðna sinna, getur illa orðið sér út um mat, lyf og aðrar nauðsynjar. Einnig aukast líkur á ofbeldi, að fatlað fólk verði skilið eftir og að það sé án aðstoðar og stuðnings. Ástandið versnar dag frá degi og árásir rússneskra stjórnvalda á óbreytta borgara í Úkraínu halda áfram.   Hreyfingarnar, sem allar vinna að réttindum fatlaðs fólks, hafa því sett af stað sameiginlega söfnun til þess að koma fjármagni til fatlaðs fólks og tryggja þeim aðstoð á staðnum. Öll framlög munu renna beint til neyðaraðstoðar fyrir fatlað fólk í Úkraínu, milliliðalaust.   Þú getur millifært á: Kt. 521176-0409 Reikningur: 526-26-5281   Hér má lesa og hlusta á viðtal við Ingu Björk, starfsmann Þroskahjálpar um ástandið eftir fund með systursamtökum Þroskahjálpar í Úkraínu.   AUÐLESIÐ

Það er stríð í Úkraínu. Rússland réðst inn í Úkraínu. Fatlað fólk á mjög erfitt í stríði. Það getur ekki flúið landið sitt. Það er erfitt fyrir það að kaupa mat og lyf. Þess vegna hafa samtök fatlaðs fólks ákveðið að safna peningum til að senda til Úkraínu. Þetta eru samtökin Þroskahjálp, Átak, TABÚ og ÖBÍ. Allir peningar sem safnast fara beint til Úkraínu. Það er hægt að millifæra styrki í banka. Númerið er: Kennitala: 521176-0409 Reikningur: 526-26-5281

Fleiri fréttir

21. janúar 2026

Félagsfundur 4.febrúar

Átak býður til félagsfundar 4. febrúar á Hafnarstræti 4.

Lesa frétt