Við fengum styrk fyrir skrifborðum, stólum, skápum og símum. Takk Kaupmanna-samtök Íslands.
Við fluttum skrifstofu Átaks í sumar.
Núna erum við í Mannréttina-húsinu, Sigtúni 42.
Við þurftum skrifborð og stóla og skápa til að setja á nýju skrifstoufna.
Kaupmannasamtök Íslands styrktu okkur
með því að kaupa ný húsgögn og búnað á nýju skrif-stofuna.
Samtökin keyptu líka nýja síma fyrir okkur.
Við ætlum að nota símana til að taka upp mynd-bönd
fyrir samfélags-miðla í betri gæðum.
Góð starfs-aðstaða
og góð tæki skipta miklu máli fyrir Átak.
Stuðningur frá kaupmanna-samtökunum hjápar okkur að:
- efla starf félagsins,
- ná betur til fólks
Við buðum fulltrúum frá kaupmanna-samtökunum í köku og kaffi
til að þakka fyrir okkur.
Við hjá Átaki þökkum Kaupmanna-samtökum Íslands kærlega fyrir stuðninginn.
