Fatlað fólk á rétt á áreiðanlegri þjónustu frá fólki sem þekkir þau. Sérstaklega í fríum.
Í ljósi um - fjöllunar sem verið hefur um ofbeldi í garð fatlaðra kvenna hef ég velt því fyrir mér hvort þú, les-andi góður, munir trúa mér, þegar þú áttar þig á því að ég er kona með þroskahömlun. Er þessu virkilega háttað svona í okkar samfélagi?
Eygló Harðardóttir félagsmála - ráðherra hafði samband við Átak, félag fólk með þroska - hömlun, þar sem ég er formaður, til að spyrja okkur hvað best væri að gera í til að verjast svona ofbeldi.
Við sögðum við hana að það besta sem gert væri, væri að hlusta á okkur og trúa okkur. Veita okkur vett - vang til þess að fá að segja okkar sögu, okkar sýn og okkar skoðun.
Þetta mál stendur okkur nærri og við viljum segja frá, segja frá upp - lifun okkar af dökku hliðum sam - félags okkar, sem allt of lengi hefur verið horft framhjá.
Stundum þurfum við sér - úrræði en þá eigum við rétt á að fá þá þjónustu sem sveitar - félögin eiga að veita okkar. Það er ekki réttlátt að ég þurfi alltaf að borga fyrir auka þjónustu ef mig langar í frí.
Það er í hlutverki sveitar - félaga að veita þá stuðnings - þjónustu sem mig vantar vegna minnar fötlunar og það er hlutverk ráð - herra að hafa eftirlit með því að sveitar - félagið mitt sé að sinna þessari þjónustu.
Hvað þá um þá, sem ekki geta tjáð sig um eða varið sig fyrir ofbeldi vegna fötlunar sinnar. Eiga þeir ekki skilyrðislaust rétt á almennilegri þjónustu sem þeir treysta?
Væri ekki betra að það væri sá sem þekkir til við - komandi, sá sem þjónustar hann alla hina dagana, sem væri að veita þjónustu í fríinu.
Af hverju þarf þjónustan að fara í frí líka og senda mig í þjónustu sem ég greiði úr eigin vasa?
Þjónustu sem enginn hefur eftirlit með og þekkir ekki til minna þarfa.
Við eigum að geta valið hvert við förum og með hverjum. Það ættu að vera sjálfsögð mannréttindi.
Mannréttindi mín eru ekki sértæk eða frekja um að fá eitthvað umfram aðra. Þau snúast um það, eins og segir í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, að ég hafi jafnan rétt á við aðra í samfélaginu að gera það sem mig langar til.
