Samráð er þegar við tölum saman og hlustum á skoðanir hvers annars. Þegar fólk er að ákveða fyrir fatlað fólk á alltaf að hafa samráð við fatlað fólk. Átak tekur þátt í samráði fyrir hönd fólks með þroskahömlun.
Átak uppfyllir alþjóðleg viðmið sem samtök fatlaðs fólks (DPO – Disabled People’s Organisation). Slík samtök eru leidd og stjórnuð af fötluðu fólki, þar sem meirihluti þeirra sem sitja í stjórn, starfa hjá félaginu eða taka þátt sem sjálfboðaliðar er fatlað fólk.
Átak tekur þátt í allskyns samráði, við önnur samtök, stjórnvöld og einkaaðila. Ef þú ert að huga að inngildingu fólks með þroskahömlun eða ert að taka ákvarðanir sem snerta líf fólks með þroskahömlun þá erum við í stakk búin til að hefja samtal.
Átak byggir á reglum sem gilda um sjálfsákvörðun fólks með þroskahömlun sem kallast DPO – Disabled People's Organization. Þetta þýðir að fólk með þroskahömlun stjórnar félaginu sjálft og tekur ákvarðanir um sín mál.
Tala á við fatlað fólk þegar teknar eru ákvarðanir sem snerta líf þess. Fatlað fólk á rétt á að hafa áhrif á allar slíkar ákvarðnir en til þess að það geti gerst þarf samtal. Samráð er samtal þar sem raunverulega er hlustað á fatlað fólk og ákvarðanir eru byggðar á sjónarmiðum og vilja þess.
Samningurinn Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) kveður skýrt á um að fatlað fólk eigi rétt á að koma að ákvörðunum sem varða það, bæði sem einstaklingar og í gegnum eigin samtök. Þessi þátttaka skal vera:
Við þróun og innleiðingu löggjafar og stefnu við innleiðingu samnings þessa og við annað ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríki hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess, þar á meðal fatlaðra barna, með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.
Almenn athugasemd nr. 7 við samninginn undirstrikar að:
-þátttaka samtaka fatlaðs fólks sé skyldubundin, ekki valfrjáls.
- Samtök fólks með þroskahömlun eiga að hafa sérstakan rétt til þátttöku — og ekki í gegnum aðstandendur, heldur á eigin forsendum.
-Samráð án aðgengis, stuðnings og aðlögunar telst ekki gilt eða fullnægjandi.
Borgaralegt samfélag, einkum fatlað fólk og samtök sem koma fram fyrir þess hönd, skal eiga hlut að og taka fullan þátt í eftirlitsferlinu.
Skilaboðin eru skýr:
Samráð við fatlað fólk er aðeins raunverulegt ef:
Þátttaka í samráði er hluti af því að viðurkenna fólk með þroskahömlun sem löghæfa einstaklinga. Samkvæmt SRFF: