Viðskiptaskilmálar

1. Almennt

Átak – félag fólks með þroskahömlun (kt. 431293-2699) rekur styrktarkerfi þar sem einstaklingar geta styrkt félagið með einstaka greiðslum eða mánaðarlegum styrkjum. Skilmálar þessir gilda um styrki sem berast í gegnum vefsíðuna styrkja.okkaratak.is. PayDay.is annast innheimtu reikninga. Grundvöllur er íslensk lög, þar með talið lög um neytendasamninga nr. 16/2016 og lög um neytendakaup nr. 48/2003.

2. Styrktarkerfi

Styrktaraðilar velja upphæð styrks og skrá persónuupplýsingar sínar (nafn, kennitölu og netfang). Reikningur er sendur á netfang styrktaraðila og krafa birtist í netbankanum hans.

Ef styrktaraðili velur mánaðarlegan styrk er upphæðin innheimt sjálfkrafa mánaðarlega þar til styrkur er felldur niður. Uppsögn mánaðarlegs styrks er heimil hvenær sem er með því að hafa samband við Átak á atak@okkaratak.is eða í síma 764 9638.

3. Endurgreiðsla

Styrkir eru að jafnaði ekki endurgreiddir. Ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi er hægt að hafa samband við Átak og óska eftir endurgreiðslu.

4. Persónuvernd

Átak heitir styrktaraðilum sínum fullum trúnaði. Persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679 (GDPR). Upplýsingar verða aldrei afhentar þriðja aðila án skýrs samþykkis, nema lög krefjist þess.

Persónuupplýsingar sem safnað er (nafn, kennitala, netfang) eru eingöngu notaðar til innheimtu styrkja og samskipta við styrktaraðila.

5. Samskipti

Með því að gerast styrktaraðili samþykkir þú að Átak megi hafa samband við þig. Afskráning er möguleg hvenær sem er með því að hafa samband á atak@okkaratak.is.

6. Breytingar á skilmálum

Átak áskilur sér rétt til að breyta þessum skilmálum. Breytingar taka gildi við birtingu á vefsíðunni. Verulegar breytingar eru tilkynntar styrktaraðilum í tölvupósti.

7. Lögsaga

Um þessa skilmála gilda íslensk lög. Ágreiningur er rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Samskiptaupplýsingar

Átak – félag fólks með þroskahömlun
Hafnarstræti 6, 3. hæð, 101 Reykjavík
Sími: 764 9638
Netfang: atak@okkaratak.is