Vélþýðing með gervigreind: hvernig vefurinn er þýddur á ensku
Enska útgáfan á okkaratak.is er þýdd sjálfkrafa með gervigreind, svokölluðu mállíkani. Hér er sagt frá því hvernig sú þýðing verður til, hvaða reglur líkanið fær, hvernig orðabók Átaks heldur réttu orðunum á sínum stað og hvernig þið farið yfir þýðinguna.
Íslenska fyrst
Allt efni á vefnum er fyrst skrifað á íslensku. Enska útgáfan er alltaf þýðing á íslensku færslunni og hefur sömu slóð.
- Strapi leyfir ekki að ný færsla sé búin til á ensku. Búið fyrst til íslensku útgáfuna.
- Slóðin (slug) á ensku verður að vera sú sama og á íslensku. Þannig opnar sami hlekkur sömu síðu á báðum málum.
Hvað gerist þegar þið birtið færslu
- Þið birtið íslensku útgáfuna í Strapi eins og venjulega.
- Strapi tekur allan texta færslunnar, titil, inngang og meginmál, og sendir hann til mállíkansins Gemini frá Google.
- Líkanið skilar enskum texta í sömu röð. Fyrirsagnir, feitletrun og tenglar haldast.
- Strapi vistar og birtir ensku útgáfuna. Þetta tekur yfirleitt nokkrar sekúndur.
Ef þýðingin mistekst er íslenska útgáfan samt birt. Þá vantar bara ensku útgáfuna og hún sést sem „Vantar EN“ á síðunni Þýðingar.
Fyrirmælin sem líkanið fær
Mállíkan þýðir ekki orð fyrir orð eins og orðabók. Það les allan textann og skrifar hann upp á nýtt á ensku. Þess vegna skiptir máli hvaða fyrirmæli það fær. Með hverri þýðingu fylgja þrír hlutar:
- Grunnfyrirmæli: líkanið er beðið um að þýða úr íslensku á ensku, halda sniði textans og þýða ekki sérnöfn nema orðabókin segi annað.
- Sameiginlegar reglur: til dæmis að enski textinn eigi að lesast eins og hann hafi verið skrifaður á ensku, ekki þýddur orð fyrir orð, og að nöfn fólks og staða haldist óþýdd. Þær eru á síðunni Þýðingarstillingar.
- Orðabók Átaks: listi yfir orð sem á að þýða á ákveðinn hátt og þýðingar sem má aldrei nota.
Líkanið er stillt þannig að það víki sem minnst frá textanum og skáldi ekki. Það getur samt gert mistök, eins og allir þýðendur. Þess vegna er farið yfir þýðinguna á eftir.
Orðabók Átaks
Orðabókin er ekki almenn orðabók. Í henni eru aðeins orð sem þýðast illa, til dæmis:
- Orð þar sem augljósa þýðingin er röng eða úrelt. Þroskahömlun er „intellectual disability“, aldrei „mental retardation“, þótt eldri orðasöfn bjóði enn upp á það.
- Orð sem byggja á íslenskum stofnunum eða lögum, eins og kennitala, krafa og umsögn.
- Nöfn og slagorð Átaks, eins og Frikkinn og Ekkert um okkur án okkar.
- Orð sem vélþýðing hefur áður þýtt vitlaust á vefnum.
Hvernig orð fer í orðabókina
Hvert orð er rannsakað í þremur skrefum:
- Hvað þýðir orðið á íslensku? Merkingin er sótt í íslenskar heimildir: málið.is (Árnastofnun), Vísindavefinn og Alþingi, fyrir orð sem lög skilgreina.
- Hvaða enska orð kemst næst, í samhengi Átaks? Enska orðið er skoðað í raunverulegri notkun: hjá samtökum fatlaðs fólks á ensku, í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og á enskum síðum íslenska stjórnarráðsins. Þýðingar sem eru rangar í þessu samhengi eru skráðar sérstaklega og líkaninu bannað að nota þær.
- Skráning. Orðið fer í orðabókina með þýðingunni, skýringu, heimildum og öllum beygingarmyndum, svo það finnist í hvaða falli sem það stendur.
Þegar ekkert sambærilegt er til á ensku er því lýst á ensku og íslenska orðið haft í sviga á eftir. Krafa verður „payment request in your online bank (krafa)“ og Frikkinn verður „the Átak annual award (Frikkinn)“.
Orðabókin sést á síðunni Þýðingarstillingar undir Átaksorðabók. Henni er ekki breytt þar, heldur í kóða vefsins, svo hvert orð sé rannsakað áður en það bætist við.
Viðbætur við orðabók
Á sömu síðu er reiturinn Viðbætur við orðabók (enska). Þar má bæta við orði sem vantar í orðabókina, til dæmis nafni á nýjum viðburði. Setjið þar aðeins orð sem orðabókin nær ekki yfir. Ef viðbót stangast á við orðabókina fær líkanið misvísandi fyrirmæli.
Yfirferð þýðingar
Opnið Þýðingar á okkaratak.is/admin/thydingar. Þar sést fyrir hverja tegund efnis hve margar færslur eru þýddar.
- Vantar EN: íslensk færsla sem hefur enga enska útgáfu.
- Aðeins á ensku: ensk færsla sem hefur enga íslenska útgáfu.
- Ólík slóð: íslenska og enska útgáfan hafa ekki sömu slóð.
Smellið á tegund og svo á færslu. Þá opnast síða sem sýnir íslenska og enska textann hlið við hlið.
Orðabókarathugun
Undir hverjum reit er listi yfir orðabókarorð sem koma fyrir í íslenska textanum, og hvort enska þýðingin notar rétta orðið. Ef stendur „ekki notað, athugaðu“ þarf að skoða það. Athugunin leitar eftir stofni orðsins, svo hún getur stundum bent á eitthvað sem er í lagi. Hún er ábending, ekki dómur.
Annað líkan les yfir
Hnappurinn Yfirfara þýðingu sendir íslenska og enska textann til annars mállíkans, sem er ekki það sama og þýddi. Það ber textana saman og bendir á:
- Merking breytt
- Staðreynd eða tala breytt
- Orðabókarorð ekki notað
- Texti vantar
- Texta bætt við
Annað líkan sér oft það sem það fyrra missti af, en það getur líka haft rangt fyrir sér. Lesið ábendinguna og metið hana sjálf.
Þegar þið lagið þýðingu
Þið getið breytt enska textanum beint á samanburðarsíðunni og valið Vista og birta EN. Þá breytist aðeins enska útgáfan.
Athugið að ef íslenska færslan er birt aftur seinna er hún þýdd upp á nýtt og lagfæringin hverfur. Ef sama villan kemur aftur og aftur, látið vita svo orðið fari í orðabókina. Þá lagast það í öllum þýðingum framvegis.