Átak heldur úti fjölbreyttu starfi allan ársins hring. Með reglulegum skemmti-viðburðum, umræðu-hópum, kynningum og fjölmiðla-verkefnum.
Ein af grunnstoðum í starfi Átaks eru skemmtiviðburðir.
Þeir eru vettvangur fyrir félagsmenn til að kynnast, efla tengsl og styrkja stöðu sína sem virkir þátttakendur í samfélaginu.
Auk þess eru viðburðirnir liður í yfirlýstu markmiði Átaks um aukna inngildingu fatlaðra í almannarými.
Samfélagsmiðlaverkefni Átaks þar sem félagsmenn Átaks sýna frá einum degi í sínu lífi.
Markmiðið er að bæta hversdags-leika fólks með þroska-hömlun við algrím samfélags-miðlanna.
Fréttaföstudagar eru fjölmiðlasmiðjur Átaks.
Þar hittast félagsmenn og aðrir áhugasamir í fjölmiðlasmiðju, skrifa pistla, ræða fréttir vikunnar og æfa sig í að skrifa eða framleiða efni fyrir fjölmiðla og samfélagsmiðla.
Verkefnið hófst vorið 2025 á skrifstofu Átaks og haustið 2025 var haldin smiðja einn föstudag í mánuði í Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal í samstarfi við Borgarbókasafnið.
Margt fólk á Íslandi hefur áhyggjur af því að fatlað fólk kosti of mikla peninga. En ekki örvænta! Við í Átaki höfum safnað liði og erum komin til að bjarga málunum!
Tónlistarmyndbandið er hluti af vitundarvakningu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks en verkefnið hlaut styrk frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.
Mánaðarlegir miðvikudagar hafa lengi verið hluti af starfi Átaks, þó með hléum.
Á mánaðarlegum miðvikudögum fær félagið gesti í heimsókn til sem segja okkur frá því sem þau eru að fást við.
Átak hefur tvisvar sinnum haldið ritsmiðjur fyrir félagsmenn.
Fyrst ritsmiðju með Sunnu Dís rithöfundi árið 2021 og síðan ljóðasmiðju með Helgu Pálínu, meðstjórnanda Átaks og ljóðskáldi, og Díönu Sjöfn, ljóðskáldi og aðstoðarritstjóra Lestrarklefans.
Það er stöðugt verkefni hjá Átaki að efla færni fatlaðs fólks að koma fram sem leiðtogar og eigin talsmenn.
Átak stendur reglulega fyrir námskeiðum og sömuleiðis eru reglulega tækifæri fyrir talsmenn til að kynna Átak og taka þátt í samráði.
Átak hefur tekið viðtöl við frambjóðendur til kosninga þar sem félagsmenn spyrja um málefni sem skipta fólk með þroskahömlun máli.