Taktu þátt í réttindabaráttu fólks með þroskahömlun

Vera með
Átak

Átak - félag fólks með þroskahömlun

Okkar Átak

  • Um Átak
  • Saga Átaks
  • Auðlesið
  • Lög Átaks

Efni

  • Fréttir
  • Viðburðir
  • Frikkinn
  • Stefnumál
  • Myndasafn
  • Útgefið efni

Samráð

  • Samráð
  • Samráðsaðilar
  • Leiðarvísir

Taka þátt

  • Fræðsla og ráðgjöf
  • Gerast félagi
  • Styrkja

Hafa samband

  • Hafnarstræti 6, 3. hæð, 101 Reykjavík
  • 764 9638
  • atak@okkaratak.is

© 2026 Átak - félag fólks með þroskahömlun

Kennitala: 431293-2699

Okkar samráð/Stuðningur

Stuðningur á okkar forsendum

Raunverulegur stuðningur styður fólk en stjórnar ekki. Þessar leiðbeiningar eru til þess að hjálpa fólki sem vill passa upp á að stuðningur sé raunverulegur.

1. Markmið stuðnings

Stuðningur á að gera þátttöku mögulega og innihaldsríka, án þess að taka yfir rödd eða ákvarðanatöku.

Stuðningur skal fara fram á forsendum þess sem fær hann og vera í samræmi við skyldur um að tryggja aðgengi og viðeigandi aðlögun.

2. Stuðningsaðilar

Þetta geta verið aðstoðarfólk, starfsfólk Átaks, aðstandendur eða annar aðili sem fulltrúi treystir.

Allir stuðningsaðilar skulu virða sjálfstæði fulltrúa og hlutverk þeirra í samráðinu.

3. Samskipti og ábyrgð

Stuðningur skal taka mið af þörfum einstaklingsins, ekki hentugleika kerfisins.

Samráðsaðilum ber ábyrgð á að gera ráð fyrir stuðningi og veita hann þegar það á við.

Starfsfólk Átaks skal styðja við undirbúning og eftirfylgni ef óskað er.

4. Gagnsæi og aðgreining hlutverka

Mikilvægt er að skýrt komi fram hver er að veita stuðning og að það sé ekki sami aðili og talar eða tekur ákvarðanir í nafni félagsins.