
Við hjá Átaki, félagi fólks með þroskahömlum stóðum fyrir framboðsfundi í síðustu forsetakosningum þar sem flestir frambjóðendur mættu og svöruðu spurningum frá fötluðu fólki.
Við höfum ákveðið að vera með samskonar fund núna í alþingis kosningunum og viljum boða alla formenn stjórnmálaflokkanna á framboðsfund með fötluðu fólki. Fundurinn verður haldinn 24. október 2016 á milli kl 17:30 og 20:00 á Grand Hótel
Samstarfsaðilar eru þáttastjórnendur og dagskrágerðarmenn úr þáttunum Með okkar augum sem sýndir eru á RÚV og Sendiherrar Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Uppsetning fundarins er eftirfarandi
Fundurinn fer fram á Grand Hótel í salnum Hvammi sem tekur um 130 manns. Áætlað er að að streyma beint frá viðburðinum en það er enn óljóst hvaða sjónvarpsstöðvar munu vera í samstarfi við okkur.
Formaður Átaks mun setja fundinn með stuttri tölu. Því næst taka sendiherrar við með stutta kynningu á því hvað þeir standa fyrir og stöðu fatlaðs fólks í samfélaginu.
Andri Freyr Hilmarsson úr þáttunum Með okkar augum mun stýra umræðum og þær
Katrín Guðrún Tryggvadóttir einnig úr þáttunum Með okkar augum og Ína Owen Valsdóttir sendiherra verða spyrlar sem munu spyrja stjórnmálamenn og konur spurninga um málefni fatlaðs fólks. Í lokin verður orðið gefið laust fyrir þá sem hafa spurningar úr sal.
——
Ef þig vantar frekari upplýsingar um viðburðinn getur þú haft samband á atak@throskahjalp.is eða hringt í Aileen í síma: 857 7769 eða Jón Þorstein í síma: 858 1939
Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta og taki þátt í því að svara mikilvægum spurningum um málefni fatlaðs fólks - Öll atkvæði skipta máli